FORPÖNTUN - Quax Swivel & Gliding Recliner - Rafmagns Rugguhægindastóll

135,990 kr

COLOR
Teddy taupe
Tofu

Væntanlegur í lok des/byrjun jan

Þessi snúanlegi og vagganlegi hægindastóll frá Quax er hannaður til að veita hámarksþægindi á rólegum stundum með barninu þínu – hvort sem er við gjafir, knús eða slökun. Stóllinn býður upp á mjúka vagghreyfingu, þægilegan 360° snúning og rafdrifinn halla með útfellanlegum fótaskemli sem gerir þér kleift að slaka á.

Mjúkt og áþreifanlegt áklæðið ásamt góðri bólstrun tryggir langvarandi þægindi og gerir stólinn að fallegri og notalegri viðbót við nútímalegt heimili.

Til að gera upplifunina enn þægilegri er stóllinn búinn innbyggðum USB- og USB-C hleðslutengjum, svo auðvelt er að hlaða símann á meðan setið er í stólnum. Fullkomið fyrir langar næturgjafir eða notalegar stundir þar sem gott er að hafa símann innan seilingar.

Mál:

  • Lengd: 75 cm
  • Breidd: 98 cm
  • Hæð: 98 cm

Stóllinn uppfyllir evrópska öryggisstaðalinn EN12520. Efnið er með OEKO-TEX vottun, sem þýðir að það hefur verið vandlega prófað með tilliti til skaðlegra efna og uppfyllir ströngustu öryggiskröfur.

Áklæði Teddy Taupe:

  • 100% pólýester

Áklæði Tofu:

  • Fabric: 43% Polyester, 40%Cotton, 17% Linnen

Upplýsingabæklingur