Skilmálar & skilyrði

Upplýsingar um Undrabörn


Bambino Ehf. Kt: 500718-0130, VSK- númer 134911, Axarhöfði 14, 110 Reykjavík. Fyrirtækið sérhæfir sig í innflutningi og sölu á barnavörum. Bambino áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.


Afhending vöru


Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af TVG Xpress gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar TVG Xpress um afhendingu vörunnar.  Ef annar flutningsaðili er notaður að óskum kaupanda gilda sömu skilmálar. Bambino ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Bambino til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.


Verð á vöru og sendingakostnaður


Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingarkostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með TVG Xpress. Sendingakostnaður er 990 - 10000 kr sem mv. stærð vöru og staðsetningu.


Að skipta og skila vöru

Af öryggisástæðum er ekki hægt að skila bílstólum . Við bjóðum upp á að máta stólinn í bílinn ef þess er óskað í verslun okkar til að ganga úr skugga um að hann passi.


Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.


Gölluð vara


Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000
og laga um neytendakaup.


Greiðslumátar


Hægt er að greiða með Visa-og Mastercard eða Netgíró. Við bjóðum einnig uppá greiðsludreifingu með Kortaláni Valitor þegar mætt er í verslun


  


Trúnaður (Öryggisskilmálar)


Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.


Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur