Momcozy Pregnancy Knee Pillow - meögöngu/stuðningspúði fyrir hné

6,990 kr

– Uppselt

Color
Gray
White

Momcozy hnépúðinn er hannaður til að veita þægilegan stuðning á meðan þú sefur á hliðinni. Púðinn er staðsettur á milli hnjánna og hjálpar til við að halda mjöðmum, fótleggjum og hrygg í náttúrulegri stöðu. Hann hentar sérstaklega vel á meðgöngu þegar aukið álag getur valdið óþægindum í mjóbaki, mjöðmum og fótleggjum.

Þægilegur memory foam stuðningur
Púðinn er úr mjúkum memory foam svampi sem mótast að líkamanum og veitir góðan stuðning frá lærum niður að hnjám og kálfum. Hann hjálpar til við að dreifa þrýstingi jafnt og stuðlar að þægilegri svefnstöðu.

Hannaður fyrir hliðarsvefn
Lögun púðans hjálpar til við að halda fótleggjum og mjöðmum í betri stöðu og kemur í veg fyrir að hnén þrýstist saman. Stillanleg ól heldur púðanum á sínum stað þótt þú hreyfir þig í svefni.

Öndunargott og þægilegt áklæði
Áklæðið er úr öndunargóðu efni sem hjálpar til við að leiða hita frá líkamanum og veitir þægilega tilfinningu yfir nóttina. Áklæðið er hægt að taka af og þvo í þvottavél.