1.990 kr
Momcozy Pouch Holder er hagnýt lausn sem kemur í veg fyrir leka og sull við notkun á skvísum eða Safafernum. Hann er hannaður með öryggi, þægindi og sjálfstæða notkun barnsins í huga – fullkominn fyrir daglega notkun heima eða á ferðinni.
Efnið er hitaþolið, endingargott og má fara í uppþvottavél, sem tryggir örugga og hreina notkun dag eftir dag.
Hrein og þægileg notkun
Sérstök hönnun kemur í veg fyrir að barnið kreisti úr skvísunni eða sullist, hvort sem það er í sófanum, í bílstólnum eða matarstólnum.
Hentar flestum umbúðum
Pouch Holder-inn passar fyrir flestar skvísur, endurnýtanlega poka, safafernur. Hann má nota bæði uppréttan eða snúinn við – innihaldið helst á sínum stað án leka.
Auðvelt grip og stuðningur
Bylgjulaga, þægileg handföng gera litlum höndum auðvelt að halda og drekka sjálf. Hjálpar barninu að æfa sjálfstæði við að borða á öruggan hátt.
Eiginleikar:
BPA-, DEHP- og blýlaus
Má fara í uppþvottavél og frysti
Hitaþolið efni sem heldur lögun og styrk
Endingargóð hönnun