73.990 kr
Einstaklega nett og fyrirferðarlítil hönnun
Momcozy Air 1 er aðeins 61 mm á þykkt og fellur því vel að líkamanum undir fatnaði. Nett hönnunin gerir pumpuna minna áberandi og þægilega í notkun, hvort sem þú ert í vinnunni, á ferðinni eða einfaldlega að sinna daglegum verkefnum.
Þráðlaust hleðsluhulstur
Air 1 kemur með þráðlausu hleðsluhulstri sem veitir hleðslu fyrir allt að 15 dælingar, miðað við um 30 mínútna dælingu í senn. Þannig er auðveldara að hafa pumpuna tilbúna til notkunar yfir daginn án þess að þurfa stöðugt að huga að hleðslu.
Gegnsæ hönnun auðveldar rétta staðsetningu
Gegnsær efri hluti pumpunnar gerir auðveldara að sjá hvort brjóstið og geirvartan séu rétt staðsett áður en dæling hefst. Skýrar merkingar gera þér einnig kleift að fylgjast með mjólkurmagninu á meðan dælingu stendur.
Stjórnaðu pumpunni í Momcozy appinu
Tengdu Air 1 við Momcozy appið með Bluetooth og stjórnaðu dælingunni beint úr símanum. Í appinu getur þú meðal annars byrjað og stöðvað dælingu, stillt sogstyrk, skipt á milli dælingarstillinga og stjórnað báðum pumpunum samtímis. Einnig er hægt að búa til sérsniðin dælingarprógrömm og fylgjast með dælingunni í rauntíma.
180 ml rúmtak í nettri pumpu
Þrátt fyrir fyrirferðarlitla hönnun tekur mjólkurílátið allt að 180 ml (6 oz). Air 1 sameinar þannig nett útlit og gott rúmtak og hentar vel til daglegrar notkunar, bæði heima og á ferðinni.
Til að tryggja góðan sogkraft, rétta virkni og hreinlæti er mikilvægt að skipta reglulega um slit- og varahluti brjóstapumpunnar. Tíðni fer eftir því hversu mikið pumpan er notuð.
Duckbill valves & membranes
Mælt er með að skipta um á 2–4 vikna fresti við mikla eða daglega notkun. Við minni eða óreglulega notkun er mælt með skiptum á 2–3 mánaða fresti.
Silicone diaphragms / seal caps
Mælt er með að skipta um á 1–3 mánaða fresti við mikla notkun eða á 3–4 mánaða fresti við minni eða óreglulega notkun.
Collection cups, containers & bottles
Mælt er með að skipta um á 6 mánaða fresti, eða fyrr ef rispur, aflögun eða litabreytingar koma fram.
Flanges / breast shields & tubing
Mælt er með að skipta um á 6 mánaða fresti, eða strax ef vart verður við sprungur, myglu eða raka í slöngum.
Skipta skal um viðkomandi hluta fyrr ef þú tekur eftir:
Athugið: Varahlutir brjóstapumpa eru slitvörur og ending þeirra fer eftir notkun, þrifum og meðhöndlun. Regluleg endurnýjun þeirra er mikilvæg til að viðhalda sogkrafti og réttri virkni pumpunnar.