22.990 kr
Hönnuð til að auðvelda mæðrum að dæla mjólk hvar og hvenær sem er, án flókins búnaðar eða snúra.
brjóstapumpan er létt og passar í brjóstarhaldarann sem veitir fullkomið frelsi til að sinna daglegum verkefnum á meðan dælt er.
S9 Pro handfrjálsa brjóstapumpan er með tvær stillingar fyrir dælingu og blandað sog með 9 stillanleg sogstig, sem örvar náttúrulegan sogtakt barnsins og eykur mjólkurframleiðslu, sem gerir mæðrum kleift að fá meiri mjólk á styttri tíma. LED skjárinn er mjög auðlesinn, jafnvel í fljótu bragði, sem gerir dælingu auðveldari á nóttunni ásamt 50db hljóði sem vekur ekki barn.
S9 Pro kemur með 24 mm trektastærð sem hentar flestum, en það er mikilvægt að mæla geirvörtustærð áður en byrjað er að dæla til að tryggja fullkomna aðlögun (4 stærðir (17/19/21/24mm) fylgja pumpu). Brjóstastærð getur breyst fyrir og eftir dælingu, svo fylgdu leiðbeiningum við val á réttri stærð hér
Pumpan er framleidd úr matvælavottuðu, BPA-fríu sílikoni sem uppfyllir FDA-kröfur. Hægt er að setja pumpuna upp á örfáum sekúndum og hefja dælingu með einum takka. Það er auðvelt að taka pumpuna í sundur fyrir þrif, sem sparar tíma.
Hér er hægt að bera saman pumpurnar og sjá hver munurinn er á þeim - https://momcozy.com/pages/compares-pump
Til að tryggja góðan sogkraft, rétta virkni og hreinlæti er mikilvægt að skipta reglulega um slit- og varahluti brjóstapumpunnar. Tíðni fer eftir því hversu mikið pumpan er notuð.
Duckbill valves & membranes
Mælt er með að skipta um á 2–4 vikna fresti við mikla eða daglega notkun. Við minni eða óreglulega notkun er mælt með skiptum á 2–3 mánaða fresti.
Silicone diaphragms / seal caps
Mælt er með að skipta um á 1–3 mánaða fresti við mikla notkun eða á 3–4 mánaða fresti við minni eða óreglulega notkun.
Collection cups, containers & bottles
Mælt er með að skipta um á 6 mánaða fresti, eða fyrr ef rispur, aflögun eða litabreytingar koma fram.
Flanges / breast shields & tubing
Mælt er með að skipta um á 6 mánaða fresti, eða strax ef vart verður við sprungur, myglu eða raka í slöngum.
Skipta skal um viðkomandi hluta fyrr ef þú tekur eftir:
Athugið: Varahlutir brjóstapumpa eru slitvörur og ending þeirra fer eftir notkun, þrifum og meðhöndlun. Regluleg endurnýjun þeirra er mikilvæg til að viðhalda sogkrafti og réttri virkni pumpunnar.